Áður en þú greiðir
Hittist á fjölförnum stað, til dæmis í verslunarmiðstöð, og prófið tækið saman. Kveiktu á því, prófaðu skjáinn, myndavélarnar, hátalara, hleðslu og Face ID eða Touch ID.
Biddu seljandann að sýna að slökkt sé á Find My (Stillingar › nafnið › Find My) og að hann sé skráður út af Apple ID. Tæki sem er læst við Apple ID annars aðila er ónothæft og er ekki hægt að aflæsa án upprunalegs eiganda.
Best er að seljandinn endurstilli tækið fyrir framan þig (Stillingar › Almennt › Flytja eða endurstilla) og að það ræsist á uppsetningarskjánum án þess að biðja um Apple ID.
Athugaðu tækið
Berðu raðnúmerið í Stillingar › Almennt › Um saman við kassann og kvittunina, og skoðaðu ábyrgðarstöðu á checkcoverage.apple.com.
Á iPhone sýnir Stillingar › Rafhlaða raunverulegt ástand rafhlöðunnar og Stillingar › Almennt › Um › Saga varahluta hvort skipt hafi verið um skjá, rafhlöðu eða myndavél.
Á Mac sýnir Apple valmyndin › Um þennan Mac örgjörva, vinnsluminni og geymslupláss, og Kerfisupplýsingar › Rafmagn sýnir hleðsluferla rafhlöðunnar.
Greiðsla
Greiddu með millifærslu eða greiðsluappi á staðnum, þegar tækið er í höndunum á þér og þú hefur prófað það.
Aldrei greiða fyrirfram fyrir vöru sem á að senda nema þú þekkir seljandann. Óskaðu frekar eftir póstkröfu eða að hittast.
Varastu kaupendur sem bjóða meira en uppsett verð, senda „kvittun“ fyrir greiðslu sem hefur ekki borist, eða vilja senda sendil eftir vörunni.
Ef eitthvað er grunsamlegt
Haltu samskiptum á iTorg svo samtalið sé skráð. Ef þú telur að tæki sé stolið eða að um svik sé að ræða, ekki halda áfram með viðskiptin, hafðu samband við lögregluna og láttu okkur vita á hallo@itorg.is.